Fréttir
25. apríl 2009

Undirbúningsnámskeið í stærðfræði sumar 2009

Þetta fornámskeið er hugsað sem undirbúningsnámskeið í stærðfræði fyrir væntanlega nemendur í frumgreinadeild eða öðrum deildum. Rifjuð verður upp stærðfræði grunnskóla og fyrstu bekkja framhaldsskóla. Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem hafa verið einhvern tíma frá námi, hafa ekki nógu góðan grunn í stærðfræði, eða vilja einfaldlega bæta sig á þessu sviði fyrir frekara nám. Námskeiðið er fimm vikna langt og því lýkur með lokaprófi. Námsmat námskeiðsins byggir á 50% lokaprófi annars vegar og vikulegum skilaverkefnum hins vegar 50%.

Meðal efnis er: formerki, liðir og þættir, röð aðgerða, almenn brot, óþekktar stærðir, jöfnur, veldi, annars stigs jöfnur, jöfnuhneppi, vaxtareikningur, prósentur og hlutföll.

 

Sótt er um námskeiðið á heimasíðu skólans; https://nemendaskra.bifrost.is/umsokn/default.jsp

Umsókn skal skráð á sumarönn 2009, undir frumgreinadeild fjarnám.

 

Námskeiðið kostar  24.000 krónur og hefst þann 15. júní 2009 en umsóknarfrestur er til 10. júní 2009.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri