19. mars 2009
Ferðamannaverslun í kjölfar efnahagssamdráttar
Í greinargerð frá Rannsóknasetri verslunarinnar kemur fram að tekjur af erlendum ferðamönnum hafa aukist.
Í lok síðasta árs jukust verulega tekjur af erlendum ferðamönnum hér á landi og að sama skapi dró mikið úr útgjöldum íslenskra ferðamanna erlendis. Í greinargerðinni er áætlað að samdráttur á útgjöldum Íslendinga erlendis og útgjöld erlendra ferðamanna sem hingað koma geti leitt til aukinnar veltu í íslenskri verslun og þjónustu sem nemur 32 milljörðum króna á þessu ári.
Skýrsluna er að finna á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar.