16. mars 2009
Tekjur af erlendum ferðamönnum aukast
Vakin er athygli á skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar sem ber heitið Ferðamannaverslun í kjölfar efnahagssamdráttar.
Í lok síðasta árs jukust verulega tekjur af erlendum ferðamönnum hér á landi og að sama skapi dró mikið úr útgjöldum íslenskra ferðamanna erlendis. Í skýrslunni er áætlað að samdráttur í útgjöldum Íslendinga erlendis og útgjöld erlendra ferðamanna sem hingað koma geti leitt til aukinnar veltu í íslenskri verslun og þjónustu sem nemur 32 milljörðum króna á þessu ári.
Skýrsluna er að finna á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar.