Fréttir
16. mars 2009

Útgáfa Háskólans á Bifröst

 

Háskólinn á Bifröst hefur á undanförnum árum gefið út bækur og rit sem tengjast fræðasviðum skólans og eiga erindi við almenning. Á meðal þeirra rita sem komið hafa út á síðustu árum eru Félagshagkerfið á Íslandi (2006) eftir Ívar Jónsson, Greinasafn (2008) eftir Ágúst Einarsson, og Hvað með evruna? (2008) eftir  Eirík Bergmann Einarsson og Jón Þór Sturluson. Væntanlegar á árinu 2009 eru til dæmis bækur um stærðfræði og lögfræði. Auk þess gefur Háskólinn út Bifröst rit lagadeildar Háskólans á Bifröst, og Tímarit um félagsvísindi (Bifröst Journal of Social Science) og nemar við lagadeild standa að útgáfu Grábrókar, tímarits um lögfræði.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri