Fréttir
11. mars 2009

Reynir Kristinsson hættir sem deildarforseti VD og Ásta Dís Óladóttir tekur við

Samkomulag hefur orðið að Reynir Kristinsson láti af störfum sem forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Hann mun áfram kenna við deildina og sinna öðrum verkefnum a.m.k. fyrst um sinn. Háskólinn á Bifröst færir Reyni kærar þakkir fyrir góð störf á undanförnum árum en hann var ráðinn að skólanum haustið 2006.

Ásta Dís Óladóttir hefur verið ráðin deildarforseti viðskiptadeildar. Hún er dósent við skólann og lýkur doktorsprófi frá Copenhagen Business School í Danmörku á þessu ári. Ásta Dís er fyrst kvenna til að gegna starfi forseta viðskiptadeildar við háskóla hérlendis.  

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri