Fréttir
10. mars 2009

Einar Mar Þórðarson talar á málstofu félagsvísindadeildar

Einar Mar Þórðarson

 Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur veltir fyrir sér komandi Alþingiskosningum. Málstofan verður haldin miðvikudaginn 11. mars í Hátíðarsal og hefst klukkan 11.45.

 Á fáum mánuðum hafa hörmungar riðið yfir íslenskt samfélag, efnahagslegt hrun og í kjölfarið féll ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar. Eftir hrunið er uppi krafa um siðbót og nýtt samfélag (Nýja Ísland). Sterk krafa hefur verið um kosningar til Alþingis og kjósendum hefur orðið að ósk sinni þar sem kosningar verða í lok apríl. Mikil krafa er um endurnýjun á Alþingi og þá bæði með nýjum flokkum og endurnýjun á listum stjórnmálaflokka sem fyrir eru. Í erindinu mun Einar Mar velta því fyrir sér hvort Alþingiskosningarnar 2009 verði sögulegar og hafa í för með sér þær breytingar sem kjósendur vænta.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri