Vilt þú vinna að rannsóknarverkefnum hjá RSA?
Rannsóknarsetur um stjórnun og alþjóðleg viðskipti (RSA) leitar að nemendum til þess að vinna að rannsóknarverkefnum innan setursins. Nemendur geta nýtt þá vinnu í samráði við rannsakendur til þess að skrifa lokaverkefni. RSA vill fá til samstarfs við sig nemendur á öllum stigum, í grunn- og framhaldsnámi og úr öllum deildum skólans.
Óskað er eftir nemendum í eftirfarandi verkefni
Fjölbreytileiki í stjórnum fyrirtækja
Rannsókn á fjölbreytileika í stjórnum fyrirtækja (board diversity) þar sem skoðað er hvaða áhrif fjölbreytileiki í stjórnum hefur á afkomu fyrirtækja á Íslandi og erlendis. Óskað er eftir meistaranema/um sem mun vinna að frekari gagnaöflun, ofan á það sem fyrir er sem gæti nýst í lokaverkefni viðkomandi. Verkefnastjóri: Ásta Dís Óladóttir, dósent.
Arðbært atvinnulíf á Íslandi í sátt við umhverfið
Til að hámarka framleiðslu stóriðju og iðnaðar þarf að finna leiðir til þess að koma til móts við þau höft sem Kyoto bókunin setur um útblástur gróðurhúsalofttegunda. Mikilvægt er að finna leiðir sem Ísland getur beitt til þess að hámarka nýtingu sinna kolefnisheimilda.
Megin markmið rannsóknarinnar er að svara því hvaða leiðir séu mögulegar til að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu arðbærs atvinnulífs á Íslandi og um leið hámarka framleiðslugetu iðnfyrirtækja án þess að það komið niður á markmiðum alþjóðlegra loftslagssamninga sem Ísland hefur skuldbindið sig til. Leitað er að BS/MS nemendum. Verkefnastjóri: Reynir Kristinsson, deildarforseti.
Komdu þér í form á Íslandi
Shape it up in Iceland er verkefni þar sem skoðað er hvernig hægt væri að fá útlendinga til þess að ferðast til Íslands og dvelja í lengri eða skemmri tíma í meðferðum vegna offituvandamála. Verkefnið er tvenns konar, annars vegar fræðileg rannsókn og hins vegar viðskiptaáætlun þar sem kannað er hvort fýsilegt sé að bjóða upp á slíkar meðferðir á Íslandi og þá hverjir ættu helst að koma að slíkri þjónustu hér á landi. Óskað er eftir BS/MS nema sem gæti nýtt m.a niðurstöður og annað í lokaverkefni sitt við skólann. Verkefnastjóri: Ásta Dís Óladóttir, dósent.
Banaslys í umferðinni
Rannsókn á banaslysum í umferðinni frá upphafi bílaaldar. Leitað er að nemanda til þess að aðstoða verkefnastjóra við ýmiskonar gagnavinnslu og greiningarvinnu. Leitað er að BS nema í sumarvinnu í tvo til þrjá mánuði. Verkefnastjóri: Óli H. Þórðarson.
Afleiðunotkun hjá íslenskum fyrirtækjum
Skoðuð verði þróun afleiðunotkunar hjá íslenskum fyrirtækjum frá opnun gjaldeyrismarkaðar. Reynt verði að finna út hvort um sé að ræða varnir á tekjum, skuldum eða stöðutökur óháð grunnrekstri viðkomandi fyrirtækis.
Rafræn bankaviðskipti
Rafræn viðskipti (Electronic Commerce) er almennt heiti yfir hvers konar viðskipti sem stofnað er til eða stunduð eru á rafrænan hátt. Rafræn viðskipti teljast ýmist þau sem að öllu leyti fara fram með rafrænum miðlum eða einungis að hluta. Þróun rafrænnar bankastarfsemi á Íslandi verður skoðuð frá 1990 til dagsins í dag og hún borin saman við þróunina í nágrannalöndum okkar. Skoðað verður sérstaklega hvort og þá hvaða áhrif miðlæga kerfi greiðslumiðlunar RB hafði á þróunina hér á landi. Hin mikla og útbreidda notkun kredit- og debitkorta verður skoðuð og borin saman við stöðu þeirra mála í nágrannalöndum okkar og sérstaklega verður þróun kortanotkunar á veraldarvefnum skoðuð. Sókn bankanna með rafræna bankastarfsemi á erlenda markaði verður skoðuð. Uppbygging bankanna á Icsave og Kaupþing Edge verður sérstaklega tekin fyrir og reynt að varpa ljósi á hvað það var sem gerði þessar afurðir svona vinsælar. Skoðað verður hvort hrun bankanna og minnkandi tiltrú á þeim muni leiða til breytingar á bankaviðskiptum og opna fyrir fjölda rafrænna banka sem og hvort svokallaðir færsluhirðar muni með tímanum breytast í rafræna banka. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hver framtíð rafrænna viðskipta er. Leitað er að bæði BS og MS nema til að koma að þessu rannsóknarverkefni sem þeir geta nýtt við lokaverkefni sitt.
Verkefnastjóri: Ásta Dís Óladóttir.
Verðmatsaðferðir og raunvirði fyrirtækja
Hvernig á að verðmeta eignir og rekstur fyrirtækja eftir hrun eins og hér á landi. Í dag eru fjölmargir aðilar að reyna að finna út hvaða verðmatsaðferðið eigi að nota en sökum þess að allir þættir í verðmatslíkönum eru óvissuþættir virðist þetta verkefni ætla að vefjast fyrir mönnum. Verkefnið er hugsað fyrir bæði BS nemanda og MS nemanda. Verkefnastjóri: Stefán Kalmansson, aðjúnkt.
Fjármögnun á íbúðalánakerfinu
Skoðuð verður þróunin á íbúðalánum frá því að bankarnir hófu samkeppni við Íbúðalánasjóð. Hvaða áhrif það hafði á verðþróun fasteigna og skuldsetningu heimilanna. Sérstaklega verður skoðað þróun erlendrar fasteignalána og hvernig gengishrun hefur haft áhrif á fjárhæðir þeirra. Leitað er að BS og MS nemendum til að vinna að þessu verkefni. Verkefnastjóri: Stefán Kalmansson.
Ráðstöfun fjármagns lífeyrissjóðanna
Greind verður þróun fjárfestinga lífeyrissjóða frá árinu 1998 til dagsins í dag. Hvernig ávöxtun þeirra hefur verið yfir þetta tímabil og hvaða áhrif hrun bankanna og gengisfall krónunnar hefur haft. Hvað hafa lífeyrissjóðirnir fjárfest í ótryggðum skuldabréfum er megin rannsóknarspurningin í þessu verkefni. Óskað er eftir meistaranema til að vinna að rannsókn sem gæti nýst sem lokaverkefni. Verkefnastjóri: Ásta Dís Óladóttir.
Today’s lead user shows tomorrow’s mainstream tourist
Verkefnið snýst um að skoða fyrirmyndar eða leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu í þeim tilgangi að nýta sem fordæmi fyrir nýsköpun og þróun í heilsutengdri ferðaþjónustu á Norðurlöndum. Rannsóknaraðferðin felst í því að nota case sem hægt er að yfirfæra lærdóm af yfir á atvinnugreinina t.d. Bláa Lónið á Íslandi. Óskað er eftir BS nemanda. Verkefnastjóri: Einar Svansson, aðjúnkt.
Þeir sem hafa áhuga á að vinna að ofangreindum verkefnum, vinsamlegast hafið samband sem fyrst við Ástu Dís Óladóttur, forstöðumann RSA með tölvupósti: astadis@bifrost.is