2. mars 2009
Rannsóknasetur um stjórnun og alþjóðaviðskipti hlýtur styrk
Nýlega úthlutaði Vegagerðin styrkjum til rannsókna á sviði umferðaröryggismála. Alls sóttu 230 aðilar um styrk úr sjóðnum og fékk RSA styrkúthlutun til þess að vinna að verkefninu Banaslys í umferðinni. Verkefnið er vistað innan Rannsóknasetursins en verkefnastjóri er Óli H. Þórðarson fyrrverandi framkvæmdastjóri og formaður Umferðarráðs. Megintilgangurinn með þessu verki er að safna saman í einn gagnagrunn öllum þeim upplýsingum sem mögulegt er að safna um sérhvert banaslys sem orðið hefur í umferðinni hér á landi og búa þannig til gagnagrunn sem nýtist öllum þeim sem vinna að umferðaröryggismálum á Íslandi. Á næsta ári mun rannsóknasetrið svo gefa út bók sem hugsuð er sem aldarspegill umræðu um slys og umferðaröryggismál í yfir 100 ár. Óli H. Þórðarson mun rita bókina.