Fréttir
27. febrúar 2009

QuestionPro netkannanakerfið

Háskólinn á Bifröst hefur gerst samstarfsaðili QuestionPro um að veita nemendum og starfsfólki háskólans aðgengi að netkannanakerfi QuestionPro til kennslu og náms, þeim að kostnaðarlausu. Samningur þessi gildir í eitt ár í senn og tók gildi í dag, 26.febrúar 2009. 

 

Nemendur og starfsmenn skrá sig sjálfir með eigið notendanafn og aðgangsorð. Til þess að skrá sig verður hver notandi að skrá netfang sitt frá Háskólanum á Bifröst, sem endar á bifrost.is. Allir nemendur, hvort sem þeir eru í fjarnámi, staðnámi, fullu námi eða hlutanámi geta skráð sig, auk kennnara og starfsfólks Háskólans.

 

Fyrir nánari upplýsingar og til að skrá sig er farið inn á heimasíðu háskólans á slóðina:

 

http://www.bifrost.is/islenska/rannsoknastarf/questionpro-netkannanir/

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri