26. febrúar 2009
Tímarit um félagsvísindi 2008 komið út
|

|
| dr. Ian Watson ritstjóri Tímarits um félagsvísindi |
Annað bindi Tímarits um félagsvísindi/Bifröst Journal of Social Science, er komið út á prenti. Í ritinu er að finna ritrýndar greinar, vinnugreinar og þjóðmálagreinar á sviði félagsvísinda eftir fjölmarga fræðimenn meðal annars frá Háskólanum á Bifröst, Háskólanum á Akureyri og Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Meðal efnis sem fjallað er um í greinunum má nefna skipulagsform íslenskra fyrirtækja, íslenska stjórnendur í norrænum samanburði, þjóðernishugmyndir Íslendinga og afstöðu til Evrópu, og áhrif spurnar eftir landi á landbúnaðarframleiðslu ákveðinna svæða. Greinarnar birtast fyrst í vefútgáfu tímaritsins á http://bjss.bifrost.is og eru þar aðgengilegar fólki að kostnaðarlausu en ritið er jafnframt gefið út á prenti árlega.
Ritstjóri Tímarits um félagsvísindi er dr. Ian Watson, lektor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Að sögn Ians hefur áhugi fræðimanna á hinu unga tímariti komið ánægjulega á óvart og hvetur hann fólk sem stundar rannsóknir til þess að freista þess að fá greinar sínar birtar í Tímariti um félagsvísindi.