Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst óskar eftir fólki í aukavinnu við úthringingar. Um er að ræða 1-4 kvöld í viku, 4-5 tíma í senn. Umsækjendur þurfa að hafa fartölvu til umráða en það er alls ekki skilyrði að vera nemandi við Háskólann á Bifröst og eru aðrir íbúar í Borgarbyggð sem komnir eru af barnsaldri sérstaklega hvattir til þess að sækja um.
Áhugasamir hafi samband við Maríu Einarsdóttur hjá Háskólanum á Bifröst: mariae@bifrost.is