26. febrúar 2009
Leiga á húsnæði lækkar í háskólaþorpinu
Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, hefur tilkynnt nemendum um fyrirhugaða lækkun á húsaleigu á háskólasvæðinu. Húsaleigan lækkar um 10%.
Í tilkynningu til nemenda segir Ágúst að skólayfirvöld hafi unnið að úrbótum í húsaleigumálum á Bifröst í nokkra mánuði en miklar breytingar hafi orðið á húsnæðis- og leigumarkaði landsmanna undanfarna mánuði. Skólinn hefur nú eignast allar íbúðir í Hamragörðum en var áður minnihlutaeigandi þar.
,,Húsaleiga á Bifröst hefur ekki hækkað að raungildi í nokkur misseri og nú hefur verið ákveðið að lækka húsaleigu nemenda á Bifröst frá og með 1. mars nk. um 10%," segir Ágúst.