Fréttir
24. febrúar 2009

Farandsýningin Starf í þágu friðar

 Farandsýningin Starf í þágu friðar: Íslenska friðargæslan hefur verið sett upp á Kaffi Bifröst. Sýningunni er ætlað að kynna almenningi þátttöku friðargæslunnar í alþjóðlegum friðar- og mannúðarverkefnum.

 

Íslenska friðargæslan hefur fært áherslur sínar yfir á langtímaverkefni í samvinnu við heimamenn er stuðla að mannréttindum, efnahagslegri þróun og heildstæðri friðaruppbyggingu í samstarfi við stofnanir Sameinuðu þjóðanna auk Atlantshafsbandalagsins og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Umræða og skilningur almennings er mikilvægur liður í farsælli þátttöku Íslendinga í alþjóðlegri friðargæslu og mannúðarstarfi en farandsýningunni er ætlað að vera innlegg í þá umræðu.

 

Sýningin samanstendur af sjö textaveggspjöldum er fjalla um málefni og svæði er tengjast friðargæslustarfi Íslendinga á vegum alþjóðastofnana. Spjöldin fjalla um Ísland í friðargæslu, konur, frið og öryggi, skammtímaverkefni, Mið-Austurlönd, Balkanskaga, Afríku og Afganistan. Veggspjöldunum fylgja fimm ljósmyndir frá friðar- og mannúðarverkefnum þar sem Íslendingar starfa á vegum friðargæslunnar.

 

Sýningin á Kaffi Bifröst stendur yfir í tvær vikur.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri