23. febrúar 2009
Forseti Íslands heimsækir Háskólann á Bifröst
Þriðjudaginn 24. febrúar mun forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, heimsækja Háskólann á Bifröst og kynna sér starfsemi hans.
Forseti fer ásamt fylgdarliði um háskólasvæðið, heimsækir deildir og fer í kennslustofur og ræðir við nemendur og kennara.
Kl. 11:45 verður opinn fundur í Hriflu þar sem forsetinn mun ræða við nemendur og svara fyrirspurnum. Ráðgert er að þessi fundur standi í um það bil klukkustund. Hann verður tekinn upp og settur á námskjá fyrir fjarnema við háskólann.