24. febrúar 2009
Málstofa um íslenskt alþjóðastarf
Málstofa á vegum félagsvísindadeildar miðvikudaginn 25. febrúar. Fjallað verður um íslenskt alþjóðastarf, þróunarsamvinnu, friðaruppbyggingu og mannúðarmál.
Íslenska friðargæslan, Þróunarsamvinnustofun Íslands og Alþjóðasvið Rauða Krossins kynna starfsemi sína og ræða um þennan starfsvettvang. Samhliða málþinginu opnar farandsýningin Starf í þágu friðar.
Frummælendur á málstofunni verða Þórdís Sigurðardóttir, staðgengill framkvæmdastjóra ÞSSÍ, Anna Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri Íslensku friðargæslunnar og Þórir Guðmundsson, sviðstjóri alþjóðasviðs RKÍ.
Málstofan verður í Hriflu og hefst klukkan 13.00. Stjórnandi málstofunnar verður Birgir Hermannsson, aðjúnkt.