Fréttir
19. febrúar 2009

Nýtt meistaranám - LL.M í evrópskum viðskipta- og félagarétti

 

Í júlí næstkomandi hefst nýtt meistaranám við lagadeild Háskólans á Bifröst, nám til LL.M gráðu í evrópskum viðskipta- og félagarétti. Námið er 90 einingar (ECTS), og er sérstaklega hugsað fyrir lögfræðinga og lögmenn, sem hafa nokkra starfsreynslu, en vilja styrkja stöðu sína og sérhæfa sig í Evrópurétti.  Námið er skipulagt sem hlutanám, þannig að unnt sé að stunda það með vinnu.  Kennt verður á ensku.

 

Námið hefst með 4 vikna sumarlotu í staðnámi á Bifröst í júlí. Á haustönn og vorönn er kennt í fjarnámi, utan tveggja vinnuhelga á önn þar sem kennt er í staðnámi á Bifröst. Þá tekur við síðari sumarlota í staðnámi á Bifröst (4 vikur) og náminu lýkur svo með 30 eininga lokaritgerð.

 

Aukin alþjóðavæðing, ásamt þátttöku á innri markaði Evrópusambandsins á grundvelli EES samningsins hefur haft í för með sér að sífellt eru gerðar auknar kröfur til þekkingar á Evrópurétti meðal lögfræðinga og annarra sem starfa í viðskiptalífinu eða á opinberum markaði. Grundvallarþekking á málefnum og lagaumhverfi Evrópusambandsins er öllum mikilvæg í þessu umhverfi en sérhæfing á sviði evrópsks viðskipta- og félagaréttar skapar ótvíræða sérstöðu á vinnumarkaði.

 

LL.M gráðan er alþjóðlega viðurkennd háskólagráða á meistarastigi og tekur námið að lágmarki 18 mánuði. Inntökuskilyrði eru grunnháskólagráða í viðskiptalögfræði, lögfræði eða sambærilegt nám.

Umsóknarfrestur er til 15. maí 2009.

 

Frekari upplýsingar um námið er að finna hér en fyrirspurnum má einnig beina til forseta lagadeildar, Bryndísar Hlöðversdóttur á netfangið bryndis@bifrost.is eða til Maríu Þorgeirsdóttur, umsjónarmanns meistaranáms, maria@bifrost.is  

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri