Fréttir
16. febrúar 2009

Verslun dregst saman

 Í nýrri skýrslu frá Rannsóknasetri verslunarinnar kemur fram að verslun dróst saman um 6.8% á föstu verðlagi í janúar miðað við sama mánuð árið áður. Velta í dagvöruverslun hefur ekki verið minni frá því í byrjun árs 2007 að raunvirði þó neytendur verji mun fleiri krónum til innkaupanna en áður. Þannig jókst velta dagvöru á breytilegu verðlagi um 23.1 % á einu ári. Í janúar síðastliðnum voru fimm helgar en fjórar í janúar í fyrra sem hefði átt að leiða til aukinnar sölu en raunin varð samdráttur. Verð á dagvöru hækkaði um 32 % á einu ári,  frá janúar 2008 til janúar 2009.

Skýrsluna má lesa á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri