13. febrúar 2009
Meistaranemar óskast í rannsóknir um stjórnir fyrirtækja
Rannsóknarsetur um stjórnun og alþjóðleg viðskipti leitar að nemendum til að vinna að rannsóknarverkefni sem snýr að stjórnum fyrirtækja.
Verkefnið felst m.a í gagnaöflun, innslætti og tölfræðiúrvinnslu.
Markmið verkefnisins er að fá skýra mynd af þeirri fylgni sem kann að vera á milli afkomu fyrirtækja og fjölbreytileika (board diversity) í stjórnum fyrirtækja.
Gerð verður tölfræðileg greining á fjölmörgum þáttum:
Samanburður á fjölbreytileika og arðsemi í 300 stærstu fyrirtækjum á Íslandi frá 2000-2009.
Umsækjendur þurfa m.a. að hafa sýnt góðan árangur í námi, vera fljótir að tileinka sér nýja þekkingu, hafa góða ritfærni og mjög góð tölfræðiþekking er skilyrði. Áhugasömum er bent á að senda tölvupóst til forstöðumanns RSA, Ástu Dísar Óladóttur – astadis@bifrost.is - fyrir 1. mars n.k. með meðmælum og upplýsingum um námsferil og starfsreynslu.
Reiknað er með að nemendur vinni að rannsóknarverkefninu samhliða lokaverkefni sínu eða hafi hug á að skrifa lokaverkefni á þessu sviði.