Fréttir
8. febrúar 2009

Glanni skal hann heita

Glanni
Fjölmargar tillögur að nafni á nýja kennslusalinn í Hamragörðum bárust í samkeppni þar að lútandi.

 

Glanni reyndist vinsælasta tillagan og kom nafn Þóris Páls Guðjónssonar upp þegar dregið var milli þeirra sem lögðu það til.

 

Vistarverur á Bifröst eru sumar kenndar við staði í nágrenninu og má í því sambandi til dæmis nefna Grábrók og Baulu. Nú hefur nýi kennslusalurinn í Hamragörðum bæst í þann hóp, kenndur við hinn tignarlega foss Glanna í Norðurá.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri