7. febrúar 2009
Útskrift frá Háskólanum á Bifröst
 |
| Dúxarnir Guðmundur Jónsson, Kolfinna Jóhannesdóttir og Stefán Sveinbjörnsson |
Ríflega 70 nemendur voru brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn í dag.
Hæstu einkunnir í grunnnámi hlutu þau Stefán Sveinbjörnsson í viðskiptadeild, Helga Björg Jónsdóttir í lagadeild og Páll Ingi Kvaran í félagsvísindadeild. Stefán hlaut SÍS verðlaunin sem jafnan eru veitt þeim nemanda sem hlýtur hæsta einkunn í grunnnámi. Guðmundur Jónsson ML í lögum hlaut Logos verðlaunin en þau eru veitt þeim nemanda sem hæsta einkunn hlýtur í meistaranámi í lögum.
Kolfinna Jóhannesdóttir hlaut hæstu einkunn í meistaranámi og jafnframt hæstu einkunn fyrir meistararitgerð en hún útskrifast með MA gráðu í hagnýtum hagvísindum frá félagsvísindadeild. Lokaverkefni Kolfinnu fjallar um íslenska landmarkaðinn á árunum 1998 - 2007; áhrif á þróun jarðaverðs og verðmyndun.
Í ræðu Ágústar Einarssonar, rektors kom fram að stærstur hluti þeirra sem nú útskrifast hefur fengið vinnu eða ætlar að halda áfram námi. Rektor sagðist ekki leyna því að hann hefði miklar áhyggjur af efnahagslegri framtíð landsmanna og hvatti útskriftarnema til að undirbúa verk sín vel, sýna raunsæi og draga það ekki of lengi að taka ákvarðanir.
Ræðu rektors má lesa hér.
Mikið fjölmenni sótti útskriftina í Norðurárdalnum sem skartaði sínu fegursta í febrúarsólinni.