 |
| Hrund Gunnsteinsdóttir, Ágúst Einarsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Jón Ólafsson |
Verið er að leggja lokahönd á skráningu nemenda í Prisma, sem er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna. Kennsla hefst mánudaginn 2. febrúar og lýkur 27. mars. Kennt verður í Hlíðarsmára 3 í Kópavogi á annarri hæð.
Metaðsókn hefur verið í Prisma námið og ljóst að Íslendingar eru móttækilegir fyrir námi sem þessu. Námið var skipulagt sem viðbrögð háskólanna við ástandinu í landinu og opnað var fyrir umsóknir í Prisma 16. desember 2008 og rann umsóknarfresturinn út 16. janúar 2009. Valið hefur verið úr yfir hundrað umsóknum og verður 76 nemendum veitt innganga.
Námsgjald í Prisma er 120.000 krónur og hafa nemendur fengið niðurgreiðslu á skólagjöldum frá stéttarfélögum, fagfélögum og Vinnumálastofnun.
Prisma er metið til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru listfræði og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og -miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki verður boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landssteinanna.
Yfir 50 sérfræðingar koma að náminu
Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Jóhann P. Malmqvist, frumkvöðull og prófessor í verkfræði, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær rithöfundur, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð, Halldór Guðmundsson rithöfundur, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.