Fréttir
2. febrúar 2009

Orkuveita Reykjavíkur hvetur til rannsókna

Umhverfis- og orkurannsóknasjóður Orkuveitu Reykjavíkur hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til rannsóknarverkefna háskólafólks í þriðja sinn. Nú þegar hefur sjóðurinn stutt við bakið á um 80 verkefnum á sviði umhverfisvísinda og orkumála. Í ár er meðal óskað sérstaklega eftir rannsóknum á rafvæðingu í samgöngumálum landsmanna. Umsóknarfrestur er til 2. mars.

Sjóðurinn er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og fagleg stjórn í höndum fyrirtækisins og allra háskóla á Íslandi því í vetur bættist Háskólinn á Akureyri í hóp aðildarskóla sjóðsins. Er mikill fengur að því, þar sem við skólann hafa verið stundaðar öflugar og metnaðarfullar rannsóknir á starfssviði sjóðsins. Aðrir aðildarskólar eru Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Listaháskóli Íslands, Landbúnaðarháskólinn, Háskólinn á Bifröst og Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna.

Fyrst var úthlutað úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði Orkuveitu Reykjavíkur árið 2007 og nutu þá 40 rannsóknarverkefni styrks. Í fyrra styrkti sjóðurinn 39 verkefni. Stærsta einstaka verkefnið sem sjóðurinn á aðild að er alþjóðlega kolefnisbindingarverkefnið CarbFix, sem nú stendur yfir við Hellisheiðarvirkjun.

Styrkjum er skipt í tvo flokka; opinn flokk, þar sem hugmyndaflug vísindafólksins ræður viðfangsefninu, og lokaðan flokk, þar sem sjóðsstjórnin skilgreinir viðfangsefni. Í ár óskar sjóðurinn eftir rannsóknum á átta viðfangsefnum. Eitt þeirra er rafvæðing einka- og almenningssamgangna, sem nálgast má frá sjónarhorni fjölmargra fræðasviða. Orkuveita Reykjavíkur á stærstan þátt í því að notkun jarðefnaeldsneytis við húshitun hefur verið hætt hér á landi. Nú eru samgöngur frekastar á innflutt bensín og olíu og blasir því við að beina sjónum að því að leita leiða til að nýta endurnýjanlega orkugjafa landsins  

Sjóðurinn hefur sérstakan vef á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur, www.or.is/uoor,  og er á honum allar nánari upplýsingar að finna auk umsóknarsíðna. Einungis er tekið við rafrænum umsóknum um styrki úr sjóðnum. 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri