26. janúar 2009
Háskólatónleikar - Jeff Who?
 |
| Jeff Who? |
Hin vinsæla hljómsveit Jeff Who? leikur á háskólatónleikum á Bifröst miðvikudaginn 28. janúar næstkomandi.
Hljómsveitin hefur gefið út tvo geisladiska Death Before Disco (2005), sem inniheldur meðal annars hið þekkta lag Barfly, og Jeff Who? (2008).
Að þessu sinni verða tónleikarnir á Kaffi Bifröst. Þeir hefjast að vanda klukkan fimm og standa í um það bil klukkustund. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.