Fréttir
21. janúar 2009

Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins

 Málstofa á vegum viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst er haldin á Grand Hotel í Reykjavík miðvikudaginn 21. janúar. Umræðuefni málstofunnar er sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins fram til dagsins í dag og eftir 2012; tækifæri og áhrif ef Íslendingar ákveða að sækja um fulla aðild.

 

Aðalframsögumaður á málstofunni er Michael Köhler, forstöðumaður skrifstofu Joe Borg, framkvæmdastjóra sjávarútvegsmála, hjá framkvæmdastjórn ESB.

 

Þátttakendur í pallborðsumræðum eru Eggert Guðmundsson forstjóri HB Granda, Guðbergur Rúnarsson framkvæmdastjóri SF og LF, Eiríkur Bergmann Einarsson dósent við Háskólann á Bifröst og Einar Svansson aðjúnkt við Háskólann á Bifröst.

 

Málstofan stendur frá 8.30 - 10.00. Hún verður jafnframt send út í beinni útsendingu í Hriflu á Bifröst. Stjórnandi málstofunnar er Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst.

 

Útsending frá málstofunni er aðgengileg hér.

  

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri