Fréttir
16. janúar 2009

Nýir samstarfsskólar í Frakklandi og á Spáni

Leonard de Vinci háskóli í París
Háskólinn á Bifröst gerði nýverið samning við þrjá nýja samstarfsháskóla  í Frakklandi og á Spáni. Allir skólarnir bjóða upp á námskeið á ensku og geta nemendur nú sótt um að komast í skiptinám í eina önn í einhverjum þessara skóla.

 

Skólarnir sem um ræðir eru University of Huelva á Spáni. Hann er staðsettur á suðvestur Spáni, skammt frá landamærum Portúgals.

 

EPITECH Institut Superieur De Gestion (ISG) er ungur og mjög góður skóli í Frakklandi. Nemendafjöldi er svipaður og á Bifröst og mikið er lagt upp úr alþjóðlegum blæ og þjónustu við nemendur.

 

Leonard De Vinci University er ungur og nýtískulegur skóli í París. Skólinn er í góðu samstarfi við atvinnulífið sem er góður kostur fyrir nemendur í viðskiptafræði.

 

Kynningarfundur um skiptinám verður haldinn í Háskólanum á Bifröst í febrúar og er hann einkum ætlaður þeim nemendum sem hafa hug á að sækja um fyrir haustið 2009. Einnig verður sérstök kynning á sumarskólum í lok janúar.

 

Upplýsingar um samstarfsskóla Háskólans á Bifröst má finna hér.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri