14. janúar 2009
Rannsóknasetur verslunarinnar: Samdráttur í verslun
 |
| Emil B. Karlsson |
Í nýrri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólann á Bifröst kemur fram að velta í dagvöruverslun dróst saman um 10,4% á föstu verðlagi í desember miðað við sama mánuð árið áður.
Á breytilegu verðlagi jókst veltan um 18,2% á sama tímabili. Í þessu felst að jólaverslunin minnkaði að raunvirði þó neytendur hafi varið fleiri krónum til innkaupanna en árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 32% á einu ári, frá desember 2007 til desember 2008.
Skýrsluna er að finna á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar.
Forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar er Emil B. Karlsson.