Fréttir
12. janúar 2009

Gulleggið 2009

Gulleggið 2009 – Frumkvöðlakeppni Innovit fyrir íslenska háskólanema og nýútskrifaða er nú hafin öðru sinni. Með keppninni í ár er blásið til stórsóknar til uppbyggingar íslensks atvinnulífs með fjölgun nýrra fyrirtækja og atvinnusköpun ungs fólks að leiðarljósi.

 

Frumkvöðlakeppni Innovit er haldin að fyrirmynd sambærilegrar keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum en sú keppni ein og sér hefur skapað þúsundir starfa og verið stökkpallur fyrir ný sprotafyrirtæki sem samanlagt eru  verðmetin á yfir 20 milljarða Bandaríkjadala.

 

Keppnin er fyrst og fremst hugsuð sem tækifæri fyrir frumkvöðla til að öðlast reynslu, þekkingu og tengslanet til að koma sínum hugmyndum á framfæri og vinna að stofnun nýrra og öflugra fyrirtækja á Íslandi. Nokkur sprotafyritæki sem tóku þátt í keppninni í fyrra eða voru stofnuð í kjölfar hennar hafa nú þegar náð glæsilegum árangri og má þar nefna fyrirtækin Eff2 technologies, CLARA, Bjarmalund, Tunerific og Vinun. Þessi fjölbreyttu fyrirtæki sem spanna svið allt frá heimajúkrun til gervigreindar hafa á árinu 2008 skapað tugi nýrra starfa og gera flest ráð fyrir miklum vexti á árinu 2009.

 

Þátttaka í keppninni er ókeypis og öllum opin svo framarlega sem að í hverju teymi á bak við viðskipta­hugmynd sé að minnsta kosti einn háskólanemi eða einstaklingur sem hefur útskrifast úr íslenskum háskóla á síðustu fimm árum eða lokið háskólanámi erlendis á sama tímabili. Skráningu viðskiptahugmynda í keppnina lýkur 21. janúar nk.

 

Skráning og nánari upplýsingar er að finna á http://www.innovit.is/ 

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri