Fréttir
9. janúar 2009

Fjöldi nýrra nemenda hefur nám á Bifröst

Í háskólaþorpinu
Ríflega 300 umsóknir bárust um nám við Háskólann á Bifröst á vorönn og var hægt að veita  um það bil helmingi umsækjenda skólavist.Nýnemar í háskólanum stunda nám í öllum deildum skólans.

 

Í símenntunardeild verður hið vinsæla námskeið Máttur kvenna kennt á vorönn; Máttur kvenna I hefst þann 27. febrúar og Máttur kvenna II sem er framhaldsnámskeið hefst þann 12. febrúar. Námskeiðið Máttur kvenna,  er rekstrarnám fyrir konur sem vilja bæta rekstrarþekkingu sína, og alls hafa á fjórða hundrað kvenna lokið Mætti kvenna. Þá hefst diplómanám í verslunarstjórnun í janúar og bókhaldsnámskeið í febrúar. Enn eru nokkur sæti laus á námskeiðum símenntunardeildar á vorönn.

 

Kennsla í Prisma, samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst og Listaháskóla Íslands, verður í febrúar og mars og tekið er við umsóknum til 16. janúar. Um er að ræða þverfaglegt diplómanám þar sem burðargreinarnar eru heimspeki og fræðigreinar lista.

 

Allar nánari upplýsingar um nám á Bifröst má finna á vef háskólans.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri