Fréttir
5. janúar 2009

Tólf skiptinemar hefja nú nám á Bifröst

Júlíus Arnarson, alþjóðafulltrúi
Júlíus Arnarson, alþjóðafulltrúi
Tólf erlendir skiptinemar hefja nám við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst í dag. Skiptinemarnir koma að þessu sinni frá Frakklandi, Kanada, Kóreu og Þýskalandi.

Að sögn Júlíusar Arnarsonar, alþjóðafulltrúa, eru hinir erlendu nemar ákaflega spenntir fyrir því að takast á við námið hér "in the middle of nowhere".

Stór hluti nemenda Háskólans á Bifröst hefur á undanförnum árum farið í skiptinám í eina eða tvær annir í einhverjum af fjölmörgum samstarfsskólum Bifrastar víða um heim.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri