Fréttir
5. janúar 2009

Prisma - skapandi og gagnrýnin hugsun

Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands bjóða nú upp á þverfaglegt diplómanám sem er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Námið, sem kallast Prisma, byggist á skapandi og gagnrýninni hugsun og burðargreinar þess eru heimspeki og fræðigreinar lista.

Námið, sem hefst í febrúar, varir í átta vikur og er metið til 16 eininga á háskólastigi. Námstímanum verður skipt í þrjár lotur og fer kennsla að mestu fram í Reykjavík en einn dagur í hverri lotu verður kenndur í Háskólanum á Bifröst. Alls koma um 50 sérfræðingar á ýmsum sviðum að náminu. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, Jóhann P. Malmqvist, frumkvöðull og prófessor í verkfræði, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I. Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld, Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð,  Halldór Guðmundsson rithöfundur, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður. Forstöðumaður Prisma er Hrund Gunnsteinsdóttir.

Skráning í Prisma hófst um miðjan desember og hafa viðbrögð verið mjög góð. Umsóknarfrestur rennur út þann 16. janúar næstkomandi.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri