Fréttir
6. janúar 2009

Rannsóknasetur í stjórnun og alþjóðaviðskiptum

Stofnfundur Rannsóknaseturs í stjórnun og alþjóðaviðskiptum við Háskólann á Bifröst var haldinn þann 30. desember síðastliðinn.
Stofnun rannsóknasetursins er mikilvægur áfangi í að styrkja rannsóknarstarf á vegum viðskiptadeildar skólans.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir aðstoðarforstjóri Actavis og Jakob Bjarnason framkvæmdastjóri hjá Kaupþing taka sæti í stjórn ásamt Reyni Kristinssyni forseta viðskiptadeildar. Forstöðumaður hins nýja rannsóknaseturs er Ásta Dís Óladóttir, dósent við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst.

 

Markmið Rannsóknaseturs í stjórnun og alþjóðamálum er að samhæfa vinnu við vísindarannsóknir og hagnýtar rannsóknir á vegum viðskiptadeildar til þess að auðvelda kennurum og nemendum að vinna saman að stærri verkefnum, fjármögnun þeirra, einnig útgáfu og birtingu í viðurkenndum erlendum ISI tímaritum. 

 

RSA mun beina sjónum sínum að þróun alþjóða viðskiptaumhverfisins, einstakra viðskipta- og myntsvæða og þróun mismunandi atvinnugreina.

Rannsóknir beinast að öllum sviðum stjórnunar, fjármála, markaðsmála og upplýsingatækni sem tengist rekstri fyrirtækja og stofnana. 

Rannsóknarsetrið stuðlar að nýtingu bestu lausna í viðskiptalífinu á grundvelli rannsókna með birtingum og kynningum á  rannsóknarniðurstöðum og kennslu.

 

Stjórn RSA sem skipuð er aðilum úr viðskiptalífinu, ákveður nánar verkefnaáætlun fyrir hvert starfsár setursins, sem kynnt er á ársfundi.

 

Kennarar viðskiptadeildar vinna rannsóknarskyldu sína í tengslum við RSA. Kennarar sem koma að setrinu eru:

 

Ásta Dís Óladóttir,  forstöðumaður

Einar Svansson, MSc

Jón Freyr Jóhannsson, MSc

Jón Þrándur Stefánsson, Ph.D

Kári Joensen, MSc

Marina Papanastassiou, Ph.D

Reynir Kristinsson, MBA

Reynir Kristjánsson, MSc

Stefán Kalmansson, MSc

 

Auk þeirra munu eftirtaldir aðilar sinna rannsóknum við setrið:

Bersant Hobdari, lektor við Copenhagen Business School, Evis Sinari, lektor við Copenhagen Business School, Ioannis G. Economou, Research director of National Center for Scientific Research "Demokritos" Institute of Physical Chemistry, Robert Desmond Pearce, prófessor við University of Reading, Tamir Agmon, prófessor við Graduate School of Business, the College of Management í Ísrael og Goteborg University í Svíþjóð

 

Auk ofangreindra aðila vinnur RSA með sérfræðingum frá háskólum víða um heim og nemendum Háskólans á Bifröst.

 

Rannsóknarsetrið er þverfaglegur vettvangur innan og utan háskólans enda geta rannsóknarefnin legið á breiðu sviði. Viðskiptafræðideild, lagadeild og félagsvísindadeild, ásamt öðrum rannsóknarsetrum við skólann koma að rannsóknum og verkefnum rannsóknarsetursins.

Lögð er áhersla á öflugt og gagnvirkt samstarf við fyrirtæki og stofnanir sem og samtök aðila á vinnumarkaði.

 

Auk vinnuframlags kennara viðskiptadeildar leitar RSA eftir rannsóknarstyrkjum frá samkeppnissjóðum, fyrirtækjum og með hagnýtum rannsóknum fjármögnuðum af samstarfsaðilum.

 

 

All mörg rannsóknarverkefni liggja fyrir hjá RSA:

 

·         Kynjahlutfall í stjórnum og æðstu stjórnendastöðum;  áhrif á

          afkomu fyrirtækja.

·         Alþjóðavæðing fyrirtækja frá smáum hagkerfum.

·         Hvers vegna fjárfesta fyrirtæki erlendis.

·         Þjóðfélagslegur kostnaður offitu á Íslandi.

·         The international expansion of Icelandic MNEs

           and their impact on the domestic-home economy.

·         Fjarvistir á vinnustöðum í þjónustustarfsemi.

·         Blóðbankinn, þrjú verkefni

·         Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, þrjú verkefni.

·         Starfandi stjórnarformenn; Áhrif á afkomu fyrirtækja

·         Offshoring R&D to China

·         Motivation of Outflow of foreign direct investments in emerging 

          economies

·         Board diversity.  Samstarfsverkefni með Steen Thomsen,

          Copenhagen Business School, Trond Randøy, Agder

          University College - School of Management og Lars Oxelheim,

          Lund Institute of Economic Research

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri