Fréttir
19. desember 2008

Rannsóknasetur vinnuréttar kynnt hjá OECD

Elín Blöndal, prófessor, forstöðumaður Rannsóknaseturs vinnuréttar
Rannsóknasetur vinnuréttar við Háskólann á Bifröst er tilgreint á Wikigender síðu OECD, þar sem vísað er til starfsemi setursins og verkefnisins um Jafnréttiskennitöluna. Einnig kemur fram að ráðgjafarhópur Rannsóknarsetursins, sem Elín Blöndal prófessor stýrir, sé þátttakandi í verkefninu um félagslega ábyrgð fyrirtækja og jafnrétti á vegum International Finance Corporation (IFC) og Global Reporting Initiative (GRI). Á sérstakri wikigender síðu íslenska utanríkisráðuneytisins er einnig fjallað um verkefnið og þátttöku ráðgjafarhóp Bifrastar í því.

Sjá eftirgreindar wikigender síður:

http://www.wikigender.org/wiki/index.php?title=Corporate_Social_Responsibility

http://www.wikigender.org/wiki/index.php?title=Iceland

 

Um Wikigender:

Wikigender er verkefni sem sett var á laggirnar af OECD til að stuðla að miðlun upplýsinga og bættri þekkingu á sviði jafnréttismála. Sérstaklega er safnað saman rannsóknum og mælingum á jafnrétti um heim allan. Frekari upplýsingar um wikigender er að finna á www.wikigender.org

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri