6. janúar 2009
Opið markaðsnám
 |
| Hafsteinn Sv. Hafsteinsson, Reynir Kristinsson og Magnús B. Baldursson |
Háskólinn á Bifröst, Samband íslenskra auglýsingastofa, SÍA, og ÍMARK hafa gert samkomulag um sérhæft markaðsnám á háskólastigi sem er sniðið að þörfum þeirra sem vilja auka við menntun, þekkingu og hæfni á sviði markaðsfræða.
Val námskeiða og skipulag þeirra er samstarfsverkefni kennara við Háskólann á Bifröst og sérfræðinga sem eru aðilar að SÍA og ÍMARK.
Opið markaðsnám er fjarnám sem býður upp á mikið valfrelsi þannig að nemendur geta valið þá kúrsa sem best henta hverju sinni. Nemendur geta stundað nám samhliða vinnu eða tekið fleiri kúrsa ef námið er stundað eingöngu.
Ekki hefur verið mikið framboð af sérhæfðu markaðsnámi fyrir þá sem vinna á auglýsingastofum og að markaðsmálum í fyrirtækjum. Hér er því kjörið tækifæri til að styrkja sig faglega jafnframt vinnu og þeim sem misst hafa vinnu tímabundið gefst tækifæri til að nýta tímann til þess að auka við þekkingu sína og færni.
Nánari upplýsingar um skipulag námsins er að finna hér.
Námið hefst 16. febrúar 2009. Hægt er að sækja um á vef Háskólans á Bifröst, www.bifrost.is og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um námið.
Opið markaðsnám er lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Umsókn um skólavist við Háskólann á Bifröst skal innihalda:
Umsóknareyðublað sem fyllt er út með rafrænum hætti. Formið sem um ræðir tengist nemendaskráningarkerfi skólans beint og grunnupplýsingar sem þar er að finna eru fengnar úr þjóðskrá.
Persónulegt bréf til deildarforseta eða rektors (Má senda rafrænt til viðkomandi deildarforseta)
Afrit prófskírteina .
Starfsferilsskrá (má senda rafrænt til viðkomandi deildarforseta).
Stafræna mynd í góðri upplausn.