16. desember 2008
Kynþáttahyggja og viðhorf til innflytjenda á Íslandi
Kynþáttahyggja og viðhorf til innflytjenda á Íslandi: Könnun meðal íslenskra ríkisborgara á kynþáttahyggju og viðhorfum þeirra til innflytjenda á Íslandi
Haustið 2008 stóð Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst (RHB) að könnun á viðhorfum Íslendinga til innflytjenda og vann úr fyrirliggjandi gögnum sem til eru á Íslandi á viðhorfum Íslendinga til innflytjenda. Þessarri vinnu var lokið í byrjun desember 2008.
Af rannsókinni má draga tvær meginályktanir. Í fyrsta lagi hefur hefur afstaða Íslendinga til innflytjenda orðið neikvæðari á síðustu árum á sama tíma og innflytjendum hefur fjölgað á Íslandi. Í öðru lagi að Íslendingar hafa almennt jákvæða afstöðu til innflytjenda í samanburði við aðrar þjóðir. Konur, yngra fólk og þeir sem hafa meiri menntun hafa oftar jákvæða afstöðu til innflytjenda samanborið við karla, þá sem eru eldri og þá sem eru með minni menntun. Að sama skapi má sjá tilhneigingu meðal þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðis og þeirra sem starfa við iðnaðarstörf eða ósérhæfð verkastörf til að þeir hafi neikvæðari afstöðu til innflytjenda heldur en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu eða eru í öðrum störfum. Í þeim tilfellum þar sem kom fram munur á afstöðu til innflytjenda eftir því hvaða stjórnmálaflokk fólk myndi kjósa ef það yrði gengið til kosninga, kemur hugsanlega ekki á óvart að kjósendur Frjálslynda flokksins eru neikvæðastir í garð innflytjenda samanborið við kjósendur annarra flokka.
Upplýsingar um könnunina er að finna hér og á vef Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst.
Nánari upplýsingar veita Eva Heiða Önnudóttir, sérfræðingur(evaheida@bifrost.is, sími 891 6993) og Njörður Sigurjónsson forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvarinnar (njordur@bifrost.is, sími 820 1919 ).