Fréttir
15. desember 2008

Prisma - Nýtt diplómanám

Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands bjóða upp á nýtt diplómanám á háskólastigi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  • Prisma er nýtt þverfaglegt nám sem byggir á skapandi og gagnrýnni hugsun.
  • Yfir 50 sérfræðingar víðsvegar úr samfélaginu koma að kennslu.
  • Burðarfögin í náminu eru heimspeki og fræðigreinar lista. Fjölmörg önnur fög þræðast inn í kennsluna eins og til dæmis mannfræði, markaðsfræði, hönnun, tónmiðlun, menningarfræði, stjórnun, frumkvöðlafræði, arkitektúr og skipulag, ímyndafræði, skapandi skrif og miðlunarfræði

 

Prisma er nýtt diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur Akademíuna. Prisma er þverfaglegt nám sem kennt verður í febrúar og mars 2009 og er metið til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Námið nýtist sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

 

Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru fræðigreinar lista og heimspeki. Mörgum tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði, menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu, tónlistarsögu og –miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði, markaðsfræði og stjórnun. Að auki verður boðið upp á gestafyrirlestra einu sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan landssteinanna.

 

Yfir 50 sérfræðingar koma að náminu

Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar úr samfélaginu koma að kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur og forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst  -  Hallgrímur Helgason myndlistarmaður og rithöfundur  - Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur, stjórnunarfræðingur og sálgreinandi  - Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og heimspekingur, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst  -  Jóhann P. Malmqvist, frumkvöðull og prófessor í verkfræði  -  Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri  -  Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst  -   Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann  -  Auður H. Ingólfsdóttir, alþjóðafræðingur   -    Sigrún Birgisdóttir fagstjóri í arkitektúr   - Sveinbjörn I. Baldvinsson handritshöfundur   -   Viðar Hreinsson framkvæmdastjóri Reykjavíkur Akademíunnar og bókmenntafræðingur   -   Hjálmar Ragnarsson, tónskáld og rektor LHÍ   -  Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá Nýsköpunarmiðstöð   -  Halldór Guðmundsson rithöfundur  - Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur   -   Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður   -    Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir matar- og vöruhönnuður.

 

Markmið með náminu

 

1.         Þverfagleg þekking

            Nemendur styrki þverfaglega menntun sína sem gerir þeim

            kleift að setja ólíkar starfsgreinar, fræðigreinar, hugmyndir og

            hluti í samhengi og starfa á fleiri sviðum en áður.

 

2.         Fleiri verkfæri í verkfæratöskuna

            Nemendur öðlist þau verkfæri, þekkingu, reynslu og stuðning

            sem geta nýst þeim til að efla stöðu sína sem uppbyggilegir,

            skapandi og gagnrýnir þátttakendur í samfélaginu og láta

            framsæknar hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum.

 

3.         Menntun á háskólastigi

            Að námi loknu fá nemendur diplóma sem metið er til 16

            eininga (ECTS) á háskólastigi. Nemendur sem ætla sér

            frekari menntun við Háskólann á Bifröst eða Listaháskóla

            Íslands geta fengið hluta námsins metið inn í nám á

            bakkálár- og meistarstigi, að gefnum ákveðnum skilyrðum.

 

4.         Umbreyting

            Lykilorðið í náminu er umbreyting. Nemendur fá tækifæri til að

            gaumgæfa þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað í

            samfélaginu útfrá fjölbreyttum sjónarhornum undir leiðsögn

            sérfræðinga. Í slíku umhverfi verða vandamál að tækifærum,

            hindranir að flóðgáttum og hugmyndafræðilegt hrun að

            upphafi á nýjum og spennandi tímum.

 

Skipulag námsins og fyrirkomulag

Kennsla fer fram á hverjum virkum degi í Reykjavík og í þrjá daga fer kennsla fram í Háskólanum á Bifröst.  Gert er ráð fyrir nemendafjölda á bilinu 80-120 manns. Heildarfjölda nemenda verður skipt niður í smærri hópa sem hver hefur sinn hópstjóra eða umsjónarkennara. Námið er á háskólastigi og ætlað fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess.

 

Náminu er skipt niður í þrjár lotur. Burðarfögin heimspeki og fræðigreinar lista ganga í gegnum allar loturnar og önnur fög sem raðast á loturnar þjóna þeim tilgangi að víkka ennfrekar út þekkingu nemenda, sjá samhengi á milli ólíkra hluta og auka úrval verkfæra í verkfæratösku hvers og eins. Í náminu fást nemendur við að tengja saman málefni sem er áberandi í þjóðlífinu þá vikuna eða þekkt hugtak, ástand, málefni, tilfinningu, sköpunarverk, hugmyndafræði eða regluverk við námsefni hverrar lotu og eigin reynsluheim. Vinnulag námsins byggir á aðferðafræði listgreina eins og leikhúsfræða, myndlistar og hönnunar sem og rannsóknarsamfélags hugvísindanna.

 

Umsóknir og umsóknarfrestur

Hægt er að sækja um námið hér. Tekið er við umsóknum til 16. janúar kl. 16.00. 

 

Námið kostar 120.000 krónur og eru nemendur hvattir til að kanna rétt til niðurgreiðslu á skólagjöldum úr fræðslu- og menntasjóðum stéttarfélaga, fagfélaga og hjá Vinnumálastofnun.  

 

Nánari upplýsingar um námið, skólagjöld og greiðsluhögun er að fá hjá forstöðumanni Prisma, Hrund Gunnsteinsdóttur, hrund@lhi.is.  Sími 895 6371 eða 552 4234.

 

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri