5. desember 2008
Nýir nemendur á vorönn
Viðbrögð háskólans við breyttu atvinnuástandi í þjóðfélaginu felast einkum í því að námsframboð hefur verið stóraukið og nemendum gert kleift að hefja bæði grunn- og meistaranám á vormisseri 2009. Gerðar voru ráðstafanir til að taka við nýjum nemendum strax í október síðastliðnum og hófu þá um 30 manns nám við
frumgreina-, símenntunar- og viðskiptadeildir skólans. Nýr hópur hefur nám í hinu geysivinsæla námskeiði Mætti kvenna í febrúar næstkomandi.
Úrvinnsla umsókna stendur nú yfir en umsóknarfrestur um nám á vormisseri rennur út þann 10. desember.