4. desember 2008
Fundir vegna verkefnis Alþjóðabankans
Elín Blöndal og Ingibjörg Þorsteinsdóttir hafa undanfarna daga tekið þátt í vinnufundum Alþjóðalánastofnunarinnar (IFC) og GRI (Global Reporting Initiative) í London, en þær eru í ráðgjafarteymi Háskólans á Bifröst í verkefni þessara aðila um gerð viðmiða er varða félagslega ábyrgð og jafnrétti í fyrirtækjum. Innan skamms heldur Elín áfram til Jóhannesarborgar til frekari fundarhalda. Á fundunum hitta þær ásamt fulltrúum IFC og GRI fjölda aðila frá fyrirtækjum, óháðum félagasamtökum, fræðimenn o.fl., en markmið fundanna er bæði að kynna verkefnið og kynnast sjónarmiðum þessara aðila. Hlutverk ráðgjafarteymis Bifrastar er einkum að vinna að gerð viðmiða og lokaskýrslu verkefnisins sem gefin verður út í júlí 2009.