Fréttir
1. desember 2008

Umhverfismál í innkaupavagninn

Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar
Rannsóknasetur verslunarinnar hefur tekið að sér að gera fræðsluefni fyrir verslanir um hvernig starfsmenn og stjórnendur verslana geti aukið umhverfisvitund neytenda. Verkefnið, sem ber heitið Umhverfismál í innkaupavagninn, er styrkt af Starfsmannasjóði verslunar og skrifstofufólks og Styrktarsjóði Norvikur hf.,  samtals að upphæði 2,3 millj. kr.

 

Fræðsluefninu er ætlað að vera vegvísir að því hverig verslanir geti tekið aukna samfélagslega ábyrgð og um leið bætt ímynd sína. Meðal þess sem fjallað verður um í ritinu er neytendahegðun, samfélagsleg ábyrgð verslana, umbúðir, merkingar, vörustjórnun, framsetning vöru, rekjanleiki o.fl. Stærstu verslunarkeðjur landsins hafa allar óskað eftir að slíkt námsefni verði útbúið og ætla sér að nota það í fræðslu meðal starfsmanna sinna.

 

Tveir sérfræðingar hafa verið fengnir til að taka saman efnið og mun Fræðslumiðstöð atvinnulífsins leiðbeina um framsetningu efnisins svo það henti markhópnum. Verkefnisstjóri er Emil B. Karlsson. Ætlunin er að ritið komi út næsta haust.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri