1. desember 2008
Blóðbankinn auglýsir eftir nemendum til verkefnavinnu
Blóðbankinn óskar eftir þremur hópum nemenda og leiðbeinendum í verkefni sem standa munu yfir í nokkurn tíma. Gert er ráð fyrir að a.m.k. 4 nemendur starfi saman í hóp.
Verkefnin sem um ræðir eru eftirfarandi:
1.
Hvernig getur Blóðbankinn brugðist við aðhaldi í ríkisfjármálum?
Hvernig getum við einfaldað ferla? Hvaða ferla og verkefni þarf að slá sérstakri vörn um? Gildi gæðakerfis við slíkar aðstæður o. fl.
2.
Áhrif "flats niðurskurðar" á mikilvæga þjónustu í almannaþágu.
3.
Sóknarfærin. Meta og skilgreina sérstök nýsköpunarverkefni sem eru til staðar. Hvaða efnivið, sérþekkingu og sérstöðu höfum við? Samstarfsaðilar? Mögulegir styrktaraðilar meðal opinberra aðila og fyrirtækja.
Blóðbankinn mun veita víðtækan stuðning til að setja nemendur inn í málin og leitar eftir framúrskarandi nemendum.
Leiðbeinendur sem taka þátt í þessu verkefni eru:
Ásta Dís Óladóttir
Einar Svansson
Jón Þrándur Stefánsson
Jón Freyr Jóhannsson
Kári Joensen