Fréttir
19. nóvember 2008

Jólaverslunin 2008 og jólagjöfin í ár

Rannsóknasetur verslunarinnar kynnti nýverið  spá um jólaverslunina og tilkynnt var hver jólagjöfin í ár yrði.

 

Rannsóknasetrið spáir 7,5% samdrætti í jólaversluninni að raunvirði. Spáin er þó háð mikilli óvissu vegna efnahagsástandsins og minnkandi væntinga almennings. Samkvæmt þessu er gert ráð fyrir að veltan í smásöluverslun verði um 59 milljarðar kr. en var í fyrra 54,6 milljarðar kr án virðisaukaskatts. Miklar verðhækkanir hafa orðið  á árinu og því er spáð raunlækkun á veltu.

 

Könnun á jólainnkaupum leiðir í ljós að landsmenn ætla að verja minna til jólainnkaupa fyrir þessi jól en í fyrra, byrja jólainnkaupin fyrr og versla minna í útlöndum áður. Ætla má meiri hagkvæmni ráði för í jólainnkaupum að þessu sinni en áður hefur verið.

 

Jólagjöfin í ár er íslensk hönnun. Sérskipuð dómnefnd komst að þessari niðurstöðu og rökstyður það með því að íslensk hönnun njóti vaxandi vinsælda og sé mjög í takt við tíðarandann.

 

Hannaður hefur verið sérstakur límmiði sem verslanir geta notað með áletruninni Jólagjöfin í ár - Íslensk hönnun. Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu annast dreifingu á miðunum til verslana.

 

Forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar er Emil B. Karlsson.

 

Jólaverslunin 2008

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri