Fréttir
12. nóvember 2008

Mál málanna: hver verður menningarstefna Nýja Íslands?

Njörður Sigurjónsson forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst
Nýja Ísland er hugtak sem heyrst hefur mikið í umræðunni á undanförnum vikum í tengslum við hrun íslensku bankanna. Látið hefur verið í veðri vaka að þeir tímar sem við lifum á núna kalli á nýjar lausnir, nýjar spurningar, og annars konar hugsunarhátt en hefur verið ríkjandi á undanförnum árum á Íslandi.

 

Hvaða áhrif hafa þessar breytingar á menningarstefnu og áherslur í menningarmálum á Íslandi? Hvaða hlutverki gegndu menningarstofnanir eða háskólarnir í hruninu? Hvaða möguleikar eru í stöðunni?

 

Á málfundi á Bifröst, laugardaginn 15. nóvember klukkan 12.10-14.30 í Hátíðarsalnum, ræða meistaranemar í menningarstjórnun ástandið og hvert hlutverk menningarstjórnenda í breyttu umhverfi gæti verið. Haldin verður stutt framsaga en síðan verður opnað fyrir umræður. Fundarstjóri verður Njörður Sigurjónsson lektor við félagsvísindadeild og sérstakur gestur Þórunn Sigurðardóttir leikstjóri.

 

Allir velkomnir.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri