8. nóvember 2008
Hulda Gunnlaugsdóttir tekur sæti í fagráði meistaranáms í stjórnun heilbrigðisþjónustu
 |
| Hulda Gunnlaugsdóttir |
Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala-háskólasjúkrahúss, hefur tekið sæti í fagráði meistaranámsins í stjórnun heilbrigðisþjónustu við Háskólann á Bifröst. Hulda, sem tók við starfi forstjóra Landspítala - háskólasjúkrahúss þann 1. september síðastliðinn, var forstjóri Aker háskólasjúkrahússins í Osló á árunum 2005 - 2008, sviðsstjóri á Ullevål háskólasjúkrahúsinu frá 2000-2005 og hjúkrunarframkvæmdastjóri Ullevål frá 1992-1997. Áður starfaði Hulda meðal annars sem hjúkrunarfræðingur við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, Buskerud sentralsykehus og á Borgarspítalanum. Hulda var hjúkrunarforstjóri Kristnesspítala á árunum 1983-1988.
Hulda er hjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands og hefur lokið stjórnunarnámi fyrir hjúkrunarstjórnendur frá sama skóla. Hún er með Ex. Phil próf frá Háskólanum á Akureyri, embættispróf í hjúkrunarvísindum frá háskólanum í Osló og stjórnunarnám frá Solstrand.
Auk Huldu skipa fagráð meistaranámsins þau Anna Birna Jensdóttir, framkvæmdastjóri Öldungs hf. og hjúkrunarforstjóri Sóltúns, Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, dr. Birgir Jakobsson, forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi, dr. Gísli Einarsson, yfirlæknir endurhæfingardeildar LSH og fyrrverandi framkvæmdastjóri kennslu, vísinda og þróunar á LSH, dr. María Ólafsdóttir, heilsugæslulæknir og lektor við læknadeild HÍ og dr. Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans.
Forstöðumaður meistaranáms í stjórnun heilbrigðisþjónustu við Háskólann á Bifröst er Ásta Dís Óladóttir, dósent. Nú stendur yfir innritun nemenda sem hyggjast hefja nám í janúar næstkomandi.