7. nóvember 2008
Líflegt barnastarf í háskólaþorpinu - myndlistarsýning opnar í dag
Á annað hundrað börn á grunnskólaaldri búa í háskólaþorpinu á Bifröst. Í dag verður opnuð myndlistarsýning á Kaffi Bifröst með verkum eftir nemendur á leikskólanum Hraunborg og á morgun hefst kirkjuskólinn í Kringlunni.
Við opnun myndlistarsýningarinnar verður boðið upp á kaffi, kakó og kleinur.
Í kirkjuskólanum sem hefst kl.11 hvern laugardagsmorgun er fræðsla og söngur, börnin fá fjársjóðsbók og Mýsla litla og Músapési koma í heimsókn. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir í kirkjuskólann með börnunum.
Tíu til tólf ára starf kirkjunnar er í Gauknum á miðvikudögum og hefst klukkan hálffimm. Umsjón með kirkjustarfinu hefur Elínborg Sturludóttir, sóknarprestur.
Opið er í Gauknum, tómstundaaðstöðu fyrir nemendur í 6 - 10 bekk, frá kl. 20 - 22 á miðvikudagskvöldum. Umsjónarmaður er SIndri Þór Hilmarsson.
Þá má geta þess að í háskólaþorpinu er lítill leikvöllur og fyrirtaks aðstaða til knattspyrnuiðkunar á upplýstum velli.