Fréttir
6. nóvember 2008

Ingibjörg Þorsteinsdóttir flytur erindi á aðalfundi Skattaréttarfélags Íslands

Ingibjörg Þorsteinsdóttir dósent
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent við Háskólann á Bifröst, flytur fræðsluerindi á  aðalfundi Skattaréttarfélags Íslands fimmtudaginn 6. nóvember. Hún fjallar um átök og árangur á sviði skattaréttar innan Evrópusambandsins (CCCTB - common, corporate, consolidated tax base & HST -home state taxation).

 

Fundurinn hefst klukkan 16.30 í Skógarhlíð 12, Reykjavík, 5. hæð. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf auk fræðsluerindis Ingibjargar.

 

Léttar veitingar verða í boði að fundi loknum. Nýir félagar eru boðnir velkomnir og hvattir til að mæta. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið: elin.arnadottir@is.pwc.com

 

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri