Fréttir
7. nóvember 2008

Þátttaka í verkefni Alþjóðabankans um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja

Elín Blöndal prófessor stýrir ráðgjafarhópnum íslenska
 Rannsóknasetur vinnuréttar við Háskólann á Bifröst var nýlega á valið til ráðgjafar í verkefni um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og jafnrétti á vegum Alþjóðalánastofnunarinnar (IFC) sem er hluti af Alþjóðabankanum í Washington. Valið fór fram á grundvelli útboðs hér á landi en utanríkisráðuneyti Íslands er meðal helstu styrktaraðila verkefnisins. Markmið þess er einkum að efla vitund fyrirtækja um efnahagslegan ávinning af af því að nýta framlag beggja kynja og gæta að jafnrétti – jafnt innan fyrirtækja sem í allri framleiðslukeðjunni, s.s. gagnvart birgjum, neytendum, samfélaginu og umhverfi. Verkefninu, sem er þegar hafið, lýkur með gerð leiðbeininga og handbókar sem er ætlað að vera grundvöllur skýrslugerðar fyrir fyrirtæki um allan heim, en taki þó sérstakt mið af stöðu nýmarkaðsríkja (e. emerging markets). Verkefninu er stýrt frá Washington en að því kemur fjöldi fólks, frá Alþjóðabankanum, stofnunum hans, fyrirtækjum, stofnunum og samtökum. Verkefnið er þáttur í samstarfi IFC og Global Reporting Initiative (GRI) sem miðar að því að aðstoða fyrirtæki við gerð svonefndra sjálfbærniskýrslna til að bæta árangur sinn í umhverfis-, samfélags- og rekstrarmálum.

Elín Blöndal, prófessor við lagadeild, stýrir ráðgjafarhópnum, en hann skipa auk þess Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent við lagadeild og Birgir Óli Sigmundsson, M.Sc. nemi  í viðskiptafræði og kennari við viðskiptadeild Háskólans Bifröst, sem aðstoðarmaður. Þátttaka ráðgjafarhóps Bifrestinga felst m.a. í rannsóknum, gerð lokaskýrslu verkefnisins, ráðgjöf varðandi mótun og gerð viðmiða um samfélagslega ábyrgð/jafnrétti, þáttöku í vinnuhópum í Bretlandi, Suður-Afríku, Indlandi og Brasilíu og kynningu á verkefninu eftir því sem þörf krefur, en því lýkur í júlí 2009.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri