6. nóvember 2008
Erum við andleg og líkamleg eiturefna-úrgangs-ruslaskrímsli?
Edda Björgvinsdóttir heldur fyrirlestur í Hriflu fimmtudaginn 6. nóvember. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.00. Allir velkomnir, aðgangseyrir er 1500 krónur.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér: Geirlaug Jóhannsdóttir
"Megrun er úr sögunni, hreinn líkami er laus við aukakíló!"
- Hvað hefur mataræði með jákvætt hugarfar að gera?
- Hvernig getur manneskja ( með lítinn sjálfsaga!) breytt mataræði sínu úr ruslmat í vítamínríkt fæði?
- Hvernig getum við breytt hugarástandi okkar?
- Hvernig getur lélegur kokkur búið til gómsæta heilsurétti?
- Hvaða eiturefni erum við að innbyrða daglega - andlega og líkamlega?
- Hver er munurinn á að vera gagnrýnin manneskja eða vera neikvæð umhverfismengun?
- Þetta og margt fleira ber á góma í fyrirlestri Eddu og nokkrar öflugar æfingar fylgja fyrir þá sem vilja lifa heilbrigðara lífi - en nenna því ekki!
Fyrirlesturinn er fyrst og fremst spaugileg lýsing á lífsreynslu Eddu og baráttu hennar við að lagfæra líkama og sál og tilraunir til að gerast "jákvæð hollustu-æta".
Edda rekur söguna frá því hún byrjaði, kornung að búa til hollusturétti sem urðu að makróbíótísku bauna-óæti.
Jákvæðni er lífsafstaða - manneskjan getur breytt veruleika sínum og upplifað meiri gleði í lífinu en nokkurn getur órað fyrir.
Að lokum fylgja í kaupbæti nokkrar hryllingssögur frá dr. Gillian, Kevin Trudau og Huldu Clark um það hvernig matvæla- og lyfjaframleiðendur eru hreinlega að reyna að koma neytendum fyrir kattarnef!