Fréttir
1. nóvember 2008

Fjölbreytileiki í stjórnum, áhrif á afkomu fyrirtækja

Ásta Dís Óladóttir, dósent, stýrir rannsókninni hér á landi
Háskólinn á Bifröst fékk nýlega rannsóknarstyrk frá Jafnréttisráði til þess að gera rannsókn á samsetningu stjórna fyrirtækja og afkomu þeirra.  Í rannsókninni er skoðað hvort fjölbreytileiki í stjórnum fyrirtækja hafi áhrif á afkomu þeirra.  Skoðuð eru fyrirtæki sem skráð eru í kauphallir í Danmörku, á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð.  Kannað er hvort kyn, aldur og þjóðerni, ásamt fleiri þáttum, hafi áhrif á afkomu fyrirtækja.  Ásta Dís Óladóttir, dósent í viðskiptadeild stýrir rannsókninni hér á landi í samstarfi við Steen Thomsen, prófessor við Copenhagen Business School í Danmörku, Trond Randøy, prófessor við Agder University College School of Management í Noregi og Lars Oxelheim, prófessor við Lund Institute of Economic Research í Svíþjóð.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri