6. nóvember 2008
Rannsókn á falli bankanna - hlutverk Alþingis? Upptaka frá málstofu
Á málstofu lagadeildar fyrir skömmu flutti Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti erindi um hlutverk Alþingis í tengslum við úttekt á falli bankanna, orsökum þess og afleiðingum. Bryndís gerði grein fyrir þingskipuðum rannsóknarnefndum og lagalegum álitaefnum í tengslum við slíkar nefndir, skipan þeirra og hlutverk. Nefndirnar eru víðast í nágrannalöndum okkar veigamikill liður í svokölluðu þingeftirliti, en það felst í þeim reglum sem lýsa eftirlitshlutverki þingsins gagnvart ríkisstjórn og stjórnsýslu. Bryndís stýrir sérfræðinganefnd sem forseti Alþingis hefur skipað og hefur það hlutverk að gera úttekt á lagaumhverfi þingeftirlits hér á landi í samanburði við Norðurlönd. Einar Karl Hallvarðsson, dósent, brást við erindi Bryndísar.