 |
| Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra |
Á ráðstefnunni „Fyrirtæki framtíðarinnar” sem haldin var í Salnum Kópavogi þann 19. september var fjallað um nýtingu mannauðs í stjórnum og æðstu stjórnunarstöðum fyrirtækja. Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra ávarpaði ráðstefnuna og tók m.a. fram að hann útilokaði ekki lögbindingu kynjakvóta í stjórnir íslenskra fyrirtækja, líkt og Norðmenn hafa gert. Hann telur þó réttast að fyrirtækin eigi frumkvæði að því að leiðrétta þann mikla mun sem er á hlutfalli kvenna og karla í stjórnum og æðstu stjórnunarstöðum.
Fjallað var sérstaklega um norsku leiðina í erindi Marit Hoel, framkvæmdastjóra Centre for Corporate Diversty í Noregi. Þar var gripið til sérstakrar lagasetningar til að tryggja sem jafnast hlutfall kynjanna í stjórnum hlutafélaga og í febrúar 2008 höfðu öll fyrirtækin uppfyllt skilyrði laganna. Stjórnendur úr atvinnulífinu sem þátt tóku í ráðstefnunni voru þó flestir á þeirri skoðun að æskilegast væri að til kvótasetningar þyrfti ekki að koma hér á landi.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var Elanoir Tabi Haller-Jorden, framkvæmdastjóri Catalyst Europe. Lýsti hún m.a. rannsóknum stofnunarinnar sem hafa sýnt fram á fylgni milli aukins hlutfalls kvenna í stjórnum og betri afkomu fyrirtækja. Í erindi Margrétar Sæmundsdóttur, hagfræðings í viðskiptaráðuneytinu, komu einnig fram tölur sem styðja þetta. Auk þess héldu erindi Elín Blöndal, prófessor við Háskólann á Bifröst, Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins og Illugi Gunnarsson, alþingismaður. Fjölmargir stjórnendur úr atvinnulífinu tóku jafnframt þátt: Hreggviður Jónsson, Margrét Sanders, Ólafur Þ. Stephensen, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, Hildur Árnadóttir, Margrét Kristmannsdóttir, Sævar Freyr Þráinsson og Þórólfur Árnason.
Fjölmörg áhugaverð atriði komu fram á ráðstefnunni. Meðal annars vakti Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, athygli á því að nú þegar fyrirtæki væru að leita leiða til aukinnar hagsældar væri lag að fá konur til liðs við stjórnir og í æðstu stjórnunarstöður í þeirri viðleitni að auka fjölbreytni. Kom almennt fram í máli þeirra sem þátt tóku að fjölbreytni skili auknum hagnaði, laði hæft fólk til fyrirtækja og tryggi þeim aukna samkeppnishæfni. Samstaða var um kosti þess að birta áfram kennitölulista fyrirtækja, með upplýsingum um hlutfall kvenna í stjórnum og meðal æðstu stjórnenda, líkt og Háskólinn á Bifröst hefur staðið fyrir. Enda staðreyndin sú, líkt og kom fram í máli Hreggviðs Jónssonar, stjórnarformanns Vistor, að það sem ekki verður mælt – því verður ekki stjórnað!