30. ágúst 2008
Skólasetning
Ágúst Einarsson, rektor, setti Háskólann á Bifröst í dag að viðstöddu fjölmenni. Nú hefst 90. skólaár háskólans en forveri hans Samvinnuskólinn hóf starfsemi sína árið 1918. Í máli rektors kom fram að um er að ræða sama skólann, jafnvel þó hann hafi upphaflega heitið annað og hafið starfsemi sína í Reykjavík. Rektor ávarpaði viðstadda á íslensku og ensku en á þessu skólaári hefst kennsla í BS námi í viðskiptafræði á ensku.
Um 1300 nemendur stunda nú nám við Háskólann á Bifröst. Þar eru auk frumgreinadeildar, þrjár háskóladeildir, félagsvísinda-, viðskipta- og lagadeild og boðið er upp á sjö námsleiðir í meistaranámi. Mikil aðsókn er að símenntunardeild skólans en þar eru kennd námskeiðin Máttur kvenna I og II og Rekstur smærri fyrirtækja auk diplómanáms í verslunarstjórnun. Þá hefur skólinn stofnað útibú víða um land og vinnur þar í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar.
Að lokinni skólasetningu var boðið upp á veitingar á háskólatorginu.